|
|
|
|
|

Eigendur Arabæjar eru Hallgrímur Birkisson, Sonja Arnarsdóttir, Sævar Örn Sigurvinsson og Louise Anne Aitken.
Við erum í klukkustunda fjarlægð frá Reykjavík og um 25 km frá Selfossi.
Hallgrímur Birkisson er félagi í félagi Tamningamanna og með þjálfararéttindi. Hann hefur starfað lengi í greininni í u.þ.b 26 ár og hefur náð góðum árangri í íþrótta og gæðingakeppni og einnig hefur hann sýnt kynbótahross með góðum árangri.
Sævar Örn Sigurvinsson hefur tamið og þjálfað um langt skeið, hann hefur einnig verið að keppa og gengið vel þar, ásamt því að sýna kynbótahross með góðum árangri.
Dóttir Hallgríms og Sonju, Ragnheiður hefur ekki látið sitt eftir liggja og er mjög dugleg við útreiðarnar. Hún var aðeins á fimmta ári þegar hún keppti fyrst á honum Hersir sínum, síðan þá hefur hún verið óstöðvandi og náð mjög góðum árangri í keppnum og var meðal annars valin glæsilegasta parið á Reykjavíkurmeistaramótinu 2005 og var í öðru sæti á landsmótinu 2006 í barnaflokki. Hún hefur einnig náð góðum árangri með hest sinn Skjálfta frá Bjarnastöðum.
Sævar og Louise eiga 2 börn þau Svandísi 2 ára og David 1 árs. Sonja sé um bókhaldið hjá fyritækinu. Hún er einnig svæða og viðbragðsfræðingur og er formaður Svæðameðferðarfélags Íslands. Louise hefur starfað við tamningar í mörg ár í Scotlandi, Hollandi og á Íslandi. Lou stundar nú útreiðar aftur eftir barneignarfrí. |