Sölumót verður haldið að Skeiðvöllum laugardaginn 14.apríl næstkomandi. Nú er um að gera að taka daginn frá fyrir bæði seljendur og kaupendur sem vilja gera góð viðskipti. Nánari upplýsingar síðar um skráningu og annað.
Sölumót 14.apríl
Fín sala – eftirspurn eftir góðum hrossum
Eins og glöggir lesendur síðunar hafa séð þá hefur talsvert af söluhrossum verið tekið út af sölusíðunni, en töluverð sala hefur verið á síðustu vikum og nú er það svo að eftirspurn er talsverð eftir góðum söluhrossum.
Þau hross sem helst er leitað eftir eru geðgóð, hreingeng reið- og keppnishross.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Hallgrím í síma 8642118 eða Sævar 8680304.
Hestajól í Hestheimum laugardaginn 3. des
Hestajól í Hestheimum laugardaginn 3. des kl. 13.00 ! Helgi Björns syngur !
Jólasölusýning á vegum söluhóps Hestheima, sem enginn getur misst af !
• Helgi Björnsson tekur nokkur lög eins og honum einum er lagið, jíbbíkæjeij !!!
• Siggi Sig frá Þjóðólfshaga 1 verður með sýnikennslu
• Diddi og Jón Söðli kynna hnakka: Barra, Barra 2 og Stakk
• Guðmar Aubertsson dýralæknir verður með fræðsluerindi.
• Hestakerrukynningar frá Vögnum og þjónustu og Álgluggum.
Kynning frá Ásbirni Ólafssyni á Kerckhart skeifum
• Ríflega 20 söluhestar verða sýndir, allir athyglisverðir og hægt að prófa þá á staðnum !
• Happy –Hour ! Bjór á súpergóðu verði
• Kraumandi sterkur hakkréttur í kúrekastíl á litlar 1.000,- á manninn.
• ÓKEYPIS SÖLUSKOÐUN Á KEYPTUM HESTUM !
• 2 REIÐKENNSLUTÍMAR FYLGJA HVERJUM SELDUM HESTI !
ÓKEYPIS KERCKHART SKEIFNAGANGUR FYLGIR HVERJUM SELDUM HESTI !
Reiðkennarar:
Hallgrímur Birkisson, Arabæ
Ísleifur Jónasson, Kálfholti
Ólafur Þórisson , Miðkoti
Sigurður Sigurðarson, Þjóðólfshaga 1.
Tómas Snorrason, Litla-Landi.
Frábært tækifæri til að gera góð kaup fyrir jólin !
Stuð og stemming á Hestajólum í Hestheimum: Góð skemmtun, góðir hestar og gott fólk !
Með dúndurgóðri aðventukveðju,
Söluhópur Hestheima,
Frumtamningar í fullum gangi
Nú eru frumtamningar í fullum gangi en stefnt er að því að þær klárist að mestu í desember. Þeir sem hafa hug á að láta frumtemja fyrir sig þá er enn hægt að bæta við nokkrum hrossum. En áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 8642118 og 8680304.
Þá tekur þjálfun þeirra hrossa sem verða inni í vetur. Bjóðum við upp á þjálfun og framhaldstamningu fyrir bæði keppnis- og kynbótahross á öllum aldri.
Eins og flestir vita þá er mikið úrval söluhrossa hér á Arabæ, tökum við einnig við hrossum í umboðssölu en gjaldskrá má sjá hér á síðunni.
Úrslit sölumótsins
Hér eru öll úrslit sölumótsins sem haldið var í Rangárhöllinni í dag laugardag 1.okt.
Vonum að alllir hafi haft gaman af og þetta sé komið til með að verða að árlegum viðburði.
Þökkum einnig þeim sem hjálpuðu til að gera þetta að veruleika og starfsmönnum sem hjálpuðu til við framkvæmd mótsins ásamt styrtaraðilum.
Styrktaraðilar voru eftir taldir.
Máling hf
Baldvin og Þorvaldur
Fóðurblandan
Iceevants
Fjórgangur Úrslit
1 Eyrún Ýr Pálsdóttir Goggur frá Skáney 7,20
2 Jóna Guðbjörg Guðmundsdótttir Lesa meira
Söluhross sýnd í keppni
„Hugmyndin hefur blundað lengi í mér. Eftirspurnin eftir keppnishrossum er mikil, hestar eru seldir eftir því hvaða tölur þeir eru að fá í hringvallargreinum og hugmyndafræðin bak við sölumótið byggir á að sýna söluhross þegar þeir eru í keppni,“ segir Hallgrímur Birkisson, einn aðstandenda Sölumóts sem haldið verður í Rangárhöllinni 1. október næstkomandi.
Hrossaræktendur á suðurlandi standa fyrir mótinu en þátttaka á mótinu er bundið þeim skilyrðum að keppnishrossin eiga að vera á sölu. Þrír íþróttadómarar munu dæma mótið en auk þess mun fjórði dómari lýsa því sem fyrir augu ber. „Hlutverk fjórða dómarans verður þá að útskýra afhverju hrossin fá þær tölur sem þau fá,“ segir Hallgrímur og bætir við að margir hafa lýst yfir ánægju sinni með mótið en mun þetta vera í fyrsta skipti sem tilraun verður gerð með þetta nýja form kynningar á söluhrossum.
Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti T7, þar sem hestar sýna hægt tölt og frjálsa ferð, en ástæða þess að nota keppnisformið T7 frekar en T1 segir Hallgrímur að sé vegna þess að formið nýtist fjölbreyttum hestsgerðum. „Mikið er keppt í T7 í Evrópu og finnst mér að við þurfum að nota formið meira hér heima. Þetta er flokkur fyrir hestgerðir sem nýtast kannski ekki nógu vel í fjórgang, fimmgang eða tölt T1, t.d. geta góðir reiðhestar passað inn í þennan flokk.“
Skráning á Sölumótið er öllum opin og er skráningargjaldið er 3000 kr. á hross hvort sem hrossið tekur þátt í einni keppnisgrein eða fleiri.
Skylt er að skrá hrossið í verðflokk. Verðflokkarnir eru eftirfarandi:
0-600.000
600.000 – 1.200.000
1.200.000 – 1.800.000
1.800.000 – 3.000.000
3.000.000 +
Kynningar á hrossunum munu fara fram á ensku, þýsku og einu norðurlandamáli á meðan á þátttöku þeirra stendur.
Nánari upplýsingar um mótið veita mótshaldarar:
Ólafur Þórisson 8637130
Hallgrímur Birkisson 8642118
Vignir Siggeirsson 8943106
Steinn Máson 8939966
Davíð Jónsson 8973648
Líður rær hausti
Nú þegar komið er fram í ágúst þá fara menn að hugsa til hauststarfanna. Hér í Arabæ verður nóg að gera, nokkrir hektarar af rófum voru settir niður í vor og fyrir liggur að taka þær upp í haust. Haustið er einnig annatími í sölu hrossa og líkur á að talsvert verði að gera í þeim málum í haust.
Mikið er af spennandi söluhrossum og líka þjálfunarhrossum sem stefnan er tekin á brautinna næsta vor. Frumtamningar eru aðeins farnar af stað, þó svo að mesta törnin verði í því í haust.
Meðfylgjandi myndir eru af Mola frá Galtarsstöðum, frábæru fjórgangsefni sem líklega á eftir að gera það gott á brautinni í framtíðinni, en Moli er aðeins 6 vetra gamall.
Frábær árangur á ÍM barna og unglinga
Árangur Arabæjargengisins var glæsilegur á gríðarlega sterku Íslandsmóti yngri flokka sem haldið var á Mánagrund síðastliðna helgi.
Ragnheiður keppti í ungmennaflokki og varð í 5. sæti í gæðingaskeiði, 2. sæti í slaktaumatölti og í 2. sæti ífimmgangi eftir að hafa sýnt mikinn karakter og sigrað B-úrslit glæsilega, á hestinum Sval frá Blönduhlíð. Einnig átti hún flottar sýningar á hestinum Garra frá Hæl, bæði í tölti og fjórgang sem þó ekki dugðu inn í úrslit.
Andri Ingason keppti í unglingaflokki og varð í 2. sæti í slaktaumatölti á hestinum Mætti frá Austurkoti eftir glæsilega sýningu. Hann varð 0,03 stigum frá því að komast í B-úrslit í tölti á hryssunni Björg frá Þjóðólfshaga 1.
Birta Ingadóttir keppti í barnaflokki og varð 2. sæti í fimi barna og 3. sæti í tölti eftir að hafa sigrað B-úrslit með yfirburðum. Hún varð einnig í 5. sæti í gæðingaskeiði unglinga.
Við óskum genginu okkar til hamingju með árangurinn. Þess má geta að Hallgrímur Birkisson hefur þjálfað þessi ungmenni um árabil með góðum árangri.
Nóg að gera
Nú er allt á fullu í Arabæ. Sláttur í fullum gangi, hross á öllum stigum tamningar og allt fullt af spennadi söluhrossum.
Það gekk prýðilega á LM2011 en Ragnheiður og Garri náðu 8,26 í ungmennaflokki, en það dugði ekki upp úr milliriðlum.
Um að gera að kíkja víð á Arabæ og sjá hvort að draumahesturinn leynist ekki þar.
Now there is full action is Arabær. Mowing in full swing, the horses at all levels of training and a whole lot of good sale horses.
LM2011 was great, but Ragnheiður and Garri reached 8.26 in ungmennaflokki, but it was not enough to get to the finals.
Please drop by at Arabær and see if dream horse is there.
Mikið um að vera vikuna eftir LM
Það verður mikið um að vera vikuna eftir Landsmót í Arabæ. Sjaldan hefur eins mikið úrval verið til af söluhrossum og um að gera fyrir þá sem eru á höttunum eftir draumahestinum að kíkja við.
Meðal hrossa sem eru í boði er Garri frá Hæl sem hefur tryggt sér þátttökurétt á LM2011 í ungmennaflokki og Flipi frá Haukholtum sem náði inn í A-flokk gæðinga á LM. Ný hross er alltaf að bætast við og endilega kynnið ykkur úrvalið hér á heimasíðunni og kíkið svo við í Arabæ.
There will be a lot going on the week after Landsmót in Arabær. Rarely has such a wide range of horses been for sale and for those who are looking for the dream horse please give us a call or drop by.
Among the horses that are available are Garri frá Hæll that has secured the participation of the LM2011 in young riders class and Flipi frá Haukholt who got into the A-class horsesin the LM. New horses are always added and please check out tha for sale page here on the homepage and then drop by at Arabær.
Flott sýning á Selfossi
Í dag lauk fyrstu kynbótasýningu á Selfossi síðan 1981 eða í 30 ár.
Margt hefur breyst á þeim tíma en sýningin tókst að flestra mati vel.
Sýnd voru um 50 hross en hér er sýningarskráin: Lesa meira
Efnileg hross og góð
Mikið er um að vera á Arabæ þessa daganna. Fjöldi söluhrossa eru í þjálfun og mikið úrval fyrir alla þá sem eru að leita að draumahestinum.
Í dag sunnudag var verið að mynda en nú á næstu dögum bætast við fjöldi söluhrossa.
Myndirnar sem hér fylgja eru m.a af Hróðri frá Votmúla sem er feykigóður fimmgangshestur,
Sævar Örn og Orka frá Þverárkoti
Sævar Örn Sigurvinsson og Orka frá Þverárkoti tóku þátt í ístöltinu AllarSterkustu í Kvöld. Hlutu þau einkunnina 6,10.
Keppnin var geysihörð en úrslitin urðu eftirfarandi:
A-úrslit
1. Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi – 9,22
2. Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti8,78
3. Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum – 8,56
4. Hinrik Bragason og Sveigur Lesa meira
Nú eru komin inn ný söluhross
Ný síða / New side
Við erum að vinna að því að setja upp nýja og endurbætta síðu en sú sem nú er komin í loftið er til brágðabyrgðar því að nýja síðan verður ekki klár fyrr en á næstu dögum.
Nýja síðan á að vera fljótari, skilmerkilegri og skírari.
We are working on a new website and the one thats up now is just temporary until the new and improved site is ready. That wont be until the first week af april. The new site will be easier, faster and better to surf the needs of our customers better.
Fréttir / News from the farm
Hér er allt á fullu nóg að gera og fullt hús af hrossum. Erum með efnileg tryppi frá okkur sjálfum undan Laxdal frá Efri-Rauðalæk og í gær voru að koma spennandi hross í sölu sem eru mjög efnileg, myndbönd væntanleg. Það er líka Gaman að segja frá því að hún Ragnheiður fékk verðlaun á jólahitting Geysis s.l föstudagskvöld fyrir frábæran árangur á árinu 2010. / We have promising horses for sale video will bee put on the website soon, we are also on facebook: Arabær – Horsecenter please join us there. Ragnheiður got prize for exellent result in competitions on 2010 last friday from her horse club Geysir.
Allt að fara í gang að nýju / We have start riding again
Loksins..loksins útreiðar eru hafnar búið að taka inn slatta af hrossum og allt lítur vel út. Við höfum nú ekki setið aðgerðarlaus hér á torfunni né með hendur í vösum því við höfum málað öll hús og gerði og klárað þau verk sem vilja sitja á hakanum er útreiðar eru í fullum gangi, svo það er allt orðið rosa fínt hjá okkur. / We have start riding again and everything is going fine. When there was no riding we painted all the house on the farm so everything is looking really good now. New horses on the salesite
Do you whant to learn on the horse that you are thinking about buying ?
How would you like to to get to know the horse you are thinking about buying with a ridingtrip in beautiful nature down by the sea ?
In june, july and august we here in Arabær which is just 1 hours drive from Reykjavík, are going to offer courses and riding tours for people that want to buy horses or just want to have a nice exciting day horse riding. Teaching will be in hands of Hallgrímur and Sævar. It is a great opportuninty to get to know the horses that you are mabye thinking of buying or are interested in. We have many years experience in selling horses and we feel that this is a very beneficial thing for potential buyers to do. The …….
Fréttir af Torfunni / News from the farm
Hallgrímur hefur verið með kennslu í hestamannafélaginu Mána í Keflavík bæði fyrir börn, unglinga og fullorðina. Almenn ánægja hefur verið með kennsluna og aðferð hans maður á mann að henta vel ólíkum knöpum og hestum, fullt er á þessi námskeið en hægt að skrá sig á biðlista. Annars gengur lífið sinn vanagang hér á torfunni um síðustu helgi fóru Sævar og Hallgrímur á upprifjunarnámskeið dómara til að viðhalda réttindum sínum. Það er hreyfing í sölu og vorum við að setja ný hross á sölusíðuna flest öll hrossin eru með myndböndum. Grímur has been teaching in the Horseclub Máni in Keflavík for youngsters and adults, people are satisfied with it and Grímur´s way man to man witch is good for different riders and horses. The course is full but it is possible to put people on waiting list. Everything is going fine here in Arabær there is good sale and we have now put in more horses on the salesite and most of them with video.










